Viðskiptavinir okkar hafa ólík markmið og takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir. Það er hlutverk okkar að hjálpa þeim að láta drauma sína rætast, ná markmiðum sínum, grípa þau tækifæri sem gefast og auðvelda þeim daglegt líf. Þannig gerum við viðskiptavinum okkar gagn.
Við tengjum betur
Með því að þekkja viðskiptavini okkar, skilja aðstæður þeirra og bjóða lausnir sem henta hverjum og einum getum við uppfyllt þarfir þeirra. Við kappkostum að tengjast viðskiptavinum okkar betur, viðhalda góðu viðskiptasambandi til lengri tíma og fara fram úr væntingum þeirra. Við erum lausnamiðuð, bjóðum fjölbreytt vöruframboð og með framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf hjálpum við viðskiptavininum að taka bestu ákvörðunina fyrir sig.
Betri bankaþjónusta
Við leitumst sífellt við að gera betur í dag en í gær í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur. Þannig veitum við viðskiptavinum okkar betri bankaþjónustu.
Við hlustum á rödd viðskiptavinarins og setjum hann í aðalhlutverk. Við leggjum okkur fram um að skilja viðskiptavini okkar, hvaða þarfir þeir hafa og hver upplifun þeirra af þjónustu bankans er. Jákvæð upplifun viðskiptavina á þeim augnablikum sem skipta hann mestu máli er okkur mikilvæg.
Við leggjum okkur fram um að skilja viðskiptavini okkar, hvaða þarfir þeir hafa og hver upplifun þeirra af þjónustu bankans er. Jákvæð upplifun viðskiptavina á þeim augnablikum sem skipta hann mestu máli er okkur mikilvæg.
Við leggjum áherslu á skilvirka starfsemi þar sem við setjum viðskiptavininn í forgrunn. Við eyðum sóun, óstöðugleika og ósveigjanleika og nýtum ávinninginn í að veita sífellt betri þjónustu sem skilar sér í betri upplifun og aukinni ánægju viðskiptavina. Við lítum á vandamál sem tækifæri til að gera betur, leggjum áherslu á að finna rót vandans og leita lausna. Þannig lærum við á hverjum degi og gerum betur í dag en í gær.
Þannig veitum við betri bankaþjónustu.
Hornsteinar
Hornsteinar Arion banka leiðbeina okkur í daglegum störfum. Þeir eru grunnur að góðum árangri og velgengni til lengri tíma, bæði okkar og viðskiptavina okkar. Við gerum gagn, við komum hreint fram og við látum verkin tala.
Gerum gagnVið leggjum grunn að góðum árangri viðskiptavina okkar með því að þekkja þá, markmið þeirra og aðstæður og gerum þeim gagn með fjölbreyttum lausnum og öflugri vöruþróun. Við gerum samfélaginu gagn með því að starfrækja góðan banka og leggjum þannig okkar af mörkum til að hér starfi traust fjármálakerfi. Við vinnum saman, leggjum hvert öðru lið og treystum hvert á annað.
Komum hreint fram
Við komum hreint fram, af virðingu og gætum trúnaðar í hvívetna. Við vinnum af heilindum, erum sanngjörn og segjum hlutina eins og þeir eru. Við berum virðingu fyrir samfélaginu og ástundum góða viðskiptahætti. Þannig ávinnum við okkur traust viðskiptavina og samfélagsins.
Það skiptir mestu hverju við komum í verk, ekki hvað við segjumst ætla að gera. Við forðumst ekki erfið verkefni heldur tökumst á við þau og vinnum af fagmennsku. Við sýnum áræðni og kjark til að koma hlutunum í framkvæmd og öxlum ábyrgð á verkefnum og ákvörðunum. Við sýnum frumkvæði í samskiptum, sýnum skjót viðbrögð og upplýsum um framgang mála.
Eins og þú vilt
Í hröðu samfélagi nútímans vill viðskiptavinurinn ráða ferðinni. Hann vill ákveðja sjálfur hvar, hvenær og hvernig hann sækir þjónustu. Hann vill fjölbreyttar vörur, sérsniðna þjónustu og valkosti sem uppfylla væntingar hans og þarfir.
Fyrirtæki þurfa að vera tilbúin að breytast hratt. Þau þurfa að geta brugðist hratt við breyttum aðstæðum, nýrri tækni og breyttum kröfum. Við leggjum því mikla áherslu á öfluga nýsköpun og stöðuga þróun þjónustu og annarra þátta í starfsemi bankans til að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar til framtíðar.
Við leggjum því mikla áherslu á öfluga nýsköpun og stöðuga þróun þjónustu og annarra þátta í starfsemi bankans til að koma til móts við þarfir viðskiptavina okkar til framtíðar.
Við veitum faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu á þeim augnablikum sem mestu máli skipta. Samhliða því bjóðum við upp á hraðþjónustu fyrir þá sem það velja, í netbanka, snjallsímaappi og hraðbönkum. Þannig geta viðskiptavinir sótt bankaþjónustu eins og þeir vilja og þannig hámörkum við virði þjónustunnar fyrir þá á sem hagkvæmastan hátt.
Alhliða fjármálaþjónusta
Arion banki er fjárhagslega sterkur banki sem býður alhliða fjármálaþjónustu til fyrirtækja, einstaklinga og fjárfesta. Við leggjum áherslu á að byggja upp langtíma viðskiptasamband við þá sem þurfa fjölbreytta fjármálaþjónustu og bjóðum persónulega þjónustu og sérsniðnar lausnir.
Markmið okkar er að ná afgerandi stöðu til lengri tíma á íslenskum bankamarkaði hvað varðar arðsemi, skilvirkni og þjónustuframboð. Við leggjum okkar af mörkum til uppbyggingar atvinnulífs og samfélags.