HÖSKULDUR H. ÓLAFSSON
Bankastjóri
Höskuldur er fæddur árið 1959. Hann tók við stöðu bankastjóra Arion banka í júní 2010. Áður, eða frá árinu 2006, gegndi Höskuldur starfi forstjóra Valitor hf. Hann starfaði hjá Eimskip í 17 ár þar sem hann sinnti margvíslegum stjórnunarstörfum, þar á meðal stöðu aðstoðarforstjóra fyrirtækisins. Höskuldur situr í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins og hefur jafnframt setið í stjórnum fjölmargra félaga og fyrirtækja hér á landi og erlendis.
Höskuldur útskrifaðist með cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1987.
Skipurit
Þjónustusvið
FREYR ÞÓRÐARSON
Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Freyr er fæddur árið 1973. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Arion banka í júní 2013.
Frá árinu 2009 til 2013 starfaði Freyr hjá Kaupþingi hf. en þar stýrði hann endurskipulagningar- og endurheimtaverkefnum í skandinavíska eignasafni Kaupþings. Hann hefur starfað í fjármála- og bankageiranum frá árinu 2001, bæði á Íslandi og erlendis, lengst af hjá Straumi fjárfestingarbanka, en einnig hjá Gnúpi fjárfestingarfélagi og Íslandsbanka/Glitni. Áður starfaði Freyr hjá átöppunarfyrirtækinu IcelandSpring/Þórsbrunnur við verksmiðjuuppbyggingu og stjórnun á árunum 1999 til 2001. Freyr hefur setið í stjórnum fyrirtækja, innanlands og erlendis, en hann sat m.a. í stjórn Arion banka frá 2012 til 2013 og í lánanefnd stjórnar bankans.
Freyr útskrifaðist með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og BS-gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2003. Áður stundaði Freyr nám við Universität Salzburg í Austurríki og lauk sk. Vordiplom í fjölmiðlafræði árið 1999.
HELGI BJARNASON
Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs
Helgi er fæddur árið 1969. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs Arion banka í október 2011.
Áður, eða frá árinu 2010, starfaði Helgi sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion banka. Árið 2006 hóf Helgi störf hjá Sjóvá Almennum tryggingum en þar gegndi hann stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra auk þess að gegna stöðu framkvæmdastjóra Sjóvár Almennra líftrygginga. Frá árinu 1997 til 2006 starfaði Helgi sem tryggingastærðfræðingur hjá Alþjóða líftryggingarfélaginu sem í dag heitir OKKAR líftryggingar. Helgi hefur setið í ýmsum stjórnum, m.a. í stjórn Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga, Samtaka atvinnulífsins og Samtaka fjármálafyrirtækja, og er nú formaður stjórnar OKKAR líftrygginga.
Helgi útskrifaðist með cand. act.-gráðu í tryggingastærðfræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1997 og BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 1992.
HALLDÓR BJARKAR LÚÐVÍGSSON
Framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs
Halldór er fæddur árið 1967. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjárfestingarbankasviðs Arion banka í september 2011.
Á árunum 2010 til 2011 var Halldór framkvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu Arion banka. Árið 2009 vann hann fyrir skilanefnd Kaupþings sem framkvæmdastjóri yfir eignasafni bankans á Norðurlöndum. Á árunum 2005 til 2008 starfaði Halldór á útlánasviði Kaupþings banka þar sem hann bar ábyrgð á útlánum á Norðurlöndunum. Á tímabilinu frá 1992 til 2005 gegndi Halldór ýmsum stjórnunarstöðum, lengst sem forstjóri Maritech A/S, alþjóðlegs fyrirtækis sem selur tæknilausnir til sjávarútvegsfyrirtækja. Halldór hefur jafnframt setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja hér á landi og erlendis.
Halldór útskrifaðist með BS-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og sem vélaverkfræðingur frá sama skóla árið 1991. Halldór er jafnframt með próf í verðbréfaviðskiptum.
MARGRÉT SVEINSDÓTTIR
Framkvæmdastjóri eignastýringarsviðs
Margrét er fædd árið 1960. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra eignastýringarsviðs Arion banka í febrúar 2009.
Frá 2007 til 2009 starfaði hún sem forstöðumaður samskipta við erlendar fjármálastofnanir innan fjárstýringar Glitnis hf./Nýja Glitnis. Á árunum 1990 til 2007 starfaði Margrét sem forstöðumaður Verðbréfavaktar auk eignastýringar einstaklinga hjá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka, síðar Eignastýringar Glitnis hf. Frá árinu 1985 til 1988 starfaði hún í lánadeild Iðnaðarbanka Íslands þar sem hún var um tíma forstöðumaður. Margrét hefur setið í fjölmörgum stjórnum og má þar nefna: Stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF, stjórn OKKAR líftrygginga hf. og í stjórnum nokkurra sjóðafyrirtækja í Lúxemborg.
Margrét útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1990 og cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum.
Stoðsvið
JÓNÍNA S. LÁRUSDÓTTIR
Framkvæmdastjóri lögfræðisviðs
Jónína er fædd árið 1970. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra lögfræðisviðs Arion banka í nóvember 2010.
Jónína var ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu frá 2007 til 2010. Á árunum 2004 til 2007 var hún skrifstofustjóri almennrar skrifstofu í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Frá 2000 til 2004 starfaði Jónína í viðskiptaráðuneytinu sem deildarsérfræðingur á skrifstofu fjármagnsmarkaðar. Á árunum 1996 til 1999 starfaði hún sem lögmaður hjá A&P lögmönnum. Jónína hefur setið í og stýrt fjölmörgum nefndum, m.a. á vegum forsætisráðuneytisins og starfað sem stundakennari, m.a. við lagadeild Háskóla Íslands. Hún var formaður Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta á árunum 2003 og 2004.
Jónína lauk meistaraprófi frá London School of Economics and Political Science árið 2000. Hún brautskráðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1996 og fékk málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi ári síðar.
RAKEL ÓTTARSDÓTTIR
Framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssviðs
Rakel er fædd árið 1973. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra þróunar- og markaðssviðs Arion banka í desember 2011.
Rakel starfaði sem forstöðumaður verkefnastofu á þróunar- og markaðssviði Arion banka frá 2010 til 2011. Á árunum 2005 til 2010 gegndi hún starfi viðskiptastjóra á upplýsinga- og tæknisviði Kaupþings banka. Áður starfaði hún sem rekstrar- og þróunarstjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software.
Rakel útskrifaðist með MBA-gráðu frá Duke University í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum árið 2002 og sem tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1997.
SIGURJÓN PÁLSSON
Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Sigurjón er fæddur árið 1972. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Arion banka í október 2011.
Á árunum 2009 til 2011 starfaði Sigurjón sem forstöðumaður í fyrirtækjalausnum Arion banka. Hann starfaði í fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka frá 2005 til 2009. Frá 1998 til 2003 gegndi Sigurjón ýmsum stjórnunarstöðum hjá Ístaki hf. Þannig stýrði hann byggingaframkvæmdum og vegaframkvæmdum samhliða því að vera yfir upplýsingatæknimálum fyrirtækisins. Sigurjón hefur setið í stjórnum fyrirtækja bæði á Íslandi og erlendis.
Sigurjón útskrifaðist með meistaragráðu í stjórnun aðfangakeðju (e. Supply Chain Management) frá MIT árið 2005. Hann lauk meistaragráðu í stjórnun verklegra framkvæmda (e. Construction Management) frá KTH í Stokkhólmi árið 1998. Sigurjón brautskráðist sem verkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1996. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum.
STEFÁN PÉTURSSON
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Stefán er fæddur árið 1963. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs Arion banka í ágúst 2010.
Stefán hóf störf hjá Landsvirkjun 1991, fyrst sem yfirmaður lánamála en sem deildarstjóri fjármáladeildar frá 1995. Frá árinu 2002 var Stefán framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar og sat sem slíkur í framkvæmdastjórn auk þess sem hann sat í samninganefnd fyrirtækisins um orkufrekan iðnað. Stefán var í leyfi frá Landsvirkjun á árinu 2008 er hann stýrði fjárfestingarfélaginu Hydro-Kraft Invest hf. Á árunum 1986 til 1989 starfaði Stefán sem skrifstofustjóri hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Stefán hefur gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnunarstarfa á undanförnum árum. Hann situr nú í stjórn Landeyjar hf. og Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF.
Stefán útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1991 og cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986.
Innra eftirlit
DR. GÍSLI S. ÓTTARSSON
Framkvæmdastjóri áhættustýringarsviðs
Gísli er fæddur árið 1963. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra áhættustýringarsviðs Arion banka í apríl 2009.
Á árunum 2006 til 2009 starfaði Gísli í áhættustýringu Kaupþings banka þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns innan rannsóknar- og hönnunardeildar. Á árunum1994 til 2006 starfaði Gísli fyrir hugbúnaðarfyrirtækin Mechanical Dynamics Inc. og MSC.Software í Bandaríkjunum þar sem hann stýrði þróun verkfræðiforritsins ADAMS.
Gísli hlaut doktorsgráðu í vélaverkfræði árið 1994 frá University of Michigan og meistaragráðu í hagnýtri aflfræði árið 1989 frá sama skóla. Árið 1986 lauk Gísli prófi í byggingaverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum.
HÁKON MÁR PÉTURSSON
Regluvörður
Hákon er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi regluvarðar Arion banka í apríl árið 2011. Á árunum 2009 til 2011 starfaði Hákon hjá KVASIR Lögmenn í ýmsum málum tengdum bankastarfsemi og fjárhagslegri endurskipulagningu.
Á árunum 2006 til 2009 starfaði Hákon sem sérfræðingur á verðbréfasviði Fjármálaeftirlitsins (FME). Á þessum tíma var hann m.a. fulltrúi FME í hópi sérfræðinga vegna bæði MiFID og yfirtökutilskipunarinnar, hjá nefnd evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR), auk þess að vera gestafyrirlesari hjá bæði Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.
Hákon útskrifaðist sem lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2007. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum og vottun í aðgerðum gegn peningaþvætti.
LILJA STEINÞÓRSDÓTTIR
Innri endurskoðandi
Lilja er fædd árið 1949. Hún var skipuð innri endurskoðandi Arion banka í október 2008. Lilja starfaði sem innri endurskoðandi hjá Kaupþingi banka á árunum 2006 til 2008. Áður starfaði hún sem innri endurskoðandi hjá Seðlabankanum í átta ár.
Árið 1986 stofnaði hún endurskoðunarfyrirtæki á Akureyri sem hún rak í 13 ár. Hún sat í endurskoðunarnefnd Reiknistofu bankanna frá 1998 til 2010, til að byrja með fyrir hönd Seðlabanka Íslands en síðar fyrir hönd Arion banka.
Lilja útskrifaðist med MBA-gráðu frá University of Edinburgh árið 1998. Hún varð löggiltur endurskoðandi árið 1984 og útskrifaðist med cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1980.
HELGI G. BJÖRNSSON
Umboðsmaður viðskiptavina
Helgi er fæddur árið 1961. Hann tók við sem umboðsmaður viðskiptavina Arion banka í apríl 2012. Helgi starfaði sem sérfræðingur hjá umboðsmanni viðskiptavina Arion banka frá 2010 til 2012.
Á árunum 1999 til 2010 starfaði Helgi sem útibússtjóri hjá Búnaðarbanka Íslands, síðar Kaupþingi banka, í Grafarvogsútibúi. Hann var aðstoðarútibússtjóri Búnaðarbankans á Akureyri frá 1993 til 1999. Á árunum 1989 til 1993 vann Helgi fyrir Skattrannsóknarstjóra, þar sem hann hafði umsjón og eftirlit, ásamt því að veita ráðgjöf, í reikningshaldi fyrirtækja fyrir Norðurland eystra. Frá 1987 til 1989 starfaði Helgi sem kennari við Samvinnuháskólann og Háskólann á Bifröst þar sem hann kenndi m.a. reikningshald og framleiðslu- og starfsmannastjórnun.
Helgi útskrifaðist sem iðnrekstrarfræðingur frá Tækniskóla Íslands árið 1987.